19.7.2007 | 16:37
Kinnhestur fyrir þá sem eiga pening.
Hún Katrín Anna fjallar um þessa auglýsingu á sinni síðu en þar sem mér er enn meinað að leggja fram komment eftir smá rifrildi fyrir nokkrum mánuðum þá langaði mig bara að setja það hér.
Bílabúð Benna er að auglýsa nýjan Porche bíl og slagorðið er einstaklega vanhugsað og hallærislegt. Mig grunar reyndar að þetta sé þýtt frá ensku því að þetta er ekkert sérstaklega þjált í munni á okkar ilhýra. Þeir segja að keyra þennan bíl sé eins og að vera sleginn kinnhesti af fallegri konu. Hvað sem það nú þýðir.
Það sem ég sé fyrir mér þegar ég les þessar línur er maður sem slefar eins pervert yfir einhverri glæsi konu sem slær hann utan undir af því að hann er dónalegur í framkomu.
Er það tilfinninginn sem maður fær við að keyra þennan bíl, niðurlæging og skömm? Sem er væntanlega tilfinninginn þegar maður kemur heim með bílinn og konan hraunar yfir mann fyrir að hafa eitt pening í svona vitleysu?
Athugasemdir
Maður var einhvernvegin búinn að sjá fyrir sér einhverja aðra útlimi fara af stað á konunum æki maður svona bifreið.... nú verður allt vitlaust..
Bjarni Bragi Kjartansson, 24.7.2007 kl. 14:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.